Nokkur orð frá eigin brjósti.
Janúar 2004 pistill.
Nýtt ár gengið í garð.


Komið þið blessuð og sæl og gleðilegt nýtt ár.

Nú eru gengið í garð árið 2004,og vonandi ber það í skauti sér velfarnað fyrir landsmenn alla. Þessi pistill er nú frekar síðbúinn enda deyfð yfir öllu svona fyrstu vikurnar á nýju ári. - Héðan úr Kántrýinu er ekkert að frétta
allt við það sama , sem sagt deyfð og rólegheit yfir öllu,því miður.
Kántrýbær hefur lokað

rekstri sínum í óákveðinn tíma eða þar til það fer að vora á ný, grundirnar að gróa og fífilinn að spretta í mó og á túni. Útvarp Kántrýbær hefur einnig lokað þar til í apríl, en mun þá hefja útsendingar aftur,þessi tími þangað til verður notaður til að viða að efni til útsendingar ,og þá sérstaklega í þá sér þætti sem það hefur haft með höndum,og jafnvel í nýja þætti, og mál þess einnig skoðuð að öðru leyti.

Með lokuninni spörum við okkur rafamagnskostnað þessa þrjá mánuði, á þeim 3 sendum sem við þurfum að reka ,svo þetta er eingöngu sparnaðaraðferð, sem við þyrftum kannski ekki að grípa til, ef fólk notfærði sér útvarpið í auglýsingarformi. Það er okkur óskiljanlegt hversvegna fólk notar ekki útvarpið til að koma auglýsingum á framfæri á hlustunarsvæði þess,sem er Skagafjörðurinn svo til öll Austurhúnavatnssýsla og Strandirnar.

því auglýsingarmáttur þess er ótvíræður á þessu svæði, því við vitum það, að allir þeir sem aka Húnvetnskan og Skagfirskan þjóðveg og Strandir eru stilltir á útvarp Kántrýbæ þegar þeir aka þessar leiðir, og þannig ætti auglýsingamáttur þess líka að geta komið tildæmis Akureyringum til góða,því þeir sem eru á leið þangað hafa útvarpið í loftinu að Silfrastöðum í Skagafirði ,svo þeir Akureyringar sem myndu auglýsa í því ,gætu þess vegna leitt viðkomandi til sín í gegnum útvarpið til að versla það sem þeir væru að auglýsa,og þótt ekki væri til annars en að fá ferðalanginn til að koma á staðinn,því það leiðir alltaf af sér einhver viðskipti í einhverri mynd, ef maður nær viðskiptavininum inn til sín ,á annað borð, því það er jú undirstaða allra viðskipta að viðskiptavinurinn komi og sjái hvað er til á boðstólnum.

Ég held að þetta sé hugsunarskekkja eða athugunarleysi, eða hvort tveggja hjá fólki,það hreinlega gerir sér ekki ljóst hvað útvarp Kántrýbær næst víða.- Útvarp Kántrýbær mun bjóða 3 mánaða auglýsingarpakka yfir sumartímann í sumar. Pakki með 3 lesningar 5 daga vikunnar kemur til með að kosta í ár kr.35,000 fyrir þessa 3 mánuði, og lengd þeirra skiptir ekki máli.

Það sjá svo sem allir, að það þarf ekki mikið að seljast út á þessar auglýsingar mánaðarlega til að þær borgi sig. Ég vona að fólk athugi þessa hlið á málinu í vinsemd,fyrir utan það að með þessum hætti myndi fólk sýna ótvíræða velþóknun sýna á útvarpinu í verki, og í styrktarformi á þennan hátt,því ef fólk vill þessa útvarpsstöð,þá þarf það að sýna það en ekki eilíft að segjast ekki vilja missa það, heldur gera þá eitthvað til þess að það geti verið því til staðar og ánægju á öldum ljósvakans.

Að endingu vil ég þakka ykkur komuna inn á síðuna mína. og óska ykkur alls hins besta.

Kúrekinn.

Ps. Jæja nú er loksins búið að ganga frá sölunni á Skagstrending hjá Eimskip, sem er búið að vera spennumál bæjarbúa,sem eiga mikið undir því komið að þetta fyrirtæki verði starfrækt áfram héðan frá Skagaströnd, og það sagt í fjölmiðlum að það hafi verið gert í fullri sátt við heimamenn, en almenningur hér hafði bara ekkert með það að segja , því ekkert var borið undir þá í þessum málum ,heldur hafa djáknarnir 2 alfarið ráðið öllu í þessum málum,eins og venjulega þegar eitthvað snertir bæjarbúa hér ,þá er ekkert verið að leita eftir áliti þeirra, en einræðið sýnt í fullu veldi .

Já, svona er unnið í öllum málum hér sama hvað er.