Kántrýdagar á Skagaströnd 2010
 
 
 
Hljómsveitin Janus mun spila í tjaldinu á Föstudagskvöldið 13.ágúst
 
Og svo í Kántrýbæ,síðar um kvöldið.
Dagskrá Kántrýdaga

Föstudagur 13. ágúst
Formlega hefjast Kántrýdagar föstudaginn 13. ágúst kl. 18 með fallbyssuskoti. Þennan dag verður margt í boði. Nefna má húsasmíðar yngstu kynslóðarinnar á Kofavöllum. Þá verður haldið námskeið í töfrabrögðum fyrir börn og unglinga, listsýning verður í Nes listamiðstöðinni og spákonurnar bjóða þeim sem vilja að skyggnast í framtíð sína. Síðar um kvöldið verða tónleikar í hátíðartjaldi þar sem 59'ers og Janus leika.

Hér má sjá stemninguna í Kántrýbæ í myndbandi af hljómsveitinni Janus

Varðeldur verður kveiktur á Hólanesi og sungið við undirleik þar til tími er kominn til að fara á tónleika í Bjarmanesi eða á ball í Kántrýbæ en þar heldur hljómsveitin Janus uppi miklu fjöri.

Laugardagur 24. ágúst
Hin síðustu á hefur Spákonuarfur staðið fyrir gönguferð upp á Spákonufell um kl. 10 á laugardagsmorgni og alltaf hefur fjöldi manns lagt á sig að ganga upp á þetta fallega fjall.

Fjölmargt annað er á dagskránni á laugardeginum. Nefna má dorgveiðikeppni, galleríið Djásn og dúllerí í Gamla kaupfélagshúsinu verður að sjálfsögðu opið, markaður verður í Miðnesi, tónleikar í Bjarmanesi og spákonurnar munu ekki láta sitt eftir liggja frekar en fyrri daginn.

Barna- og fjölskylduskemmtun verður í hátíðartjaldi. Börn munu sýna töfrabrögð, börn munu taka þátt í söngkvakeppni og fleira mætti nefna.

Um kvöldið verður dagskrá í hátíðartjaldi þar sem fram koma heimamenn og auk þeirra Bjartmar og bergrisarnir, hljómsveitin Spottarnir og fleiri.

Nokkru síðar verða tónleikar í Bjarmanesi. Um leið hefst ball í Kántrýbæ þar sem Bjartmar Guðlaugsson og bergrisarnir leika fyrir dansi.

Sunnudagur 15. ágúst
Sunnudagurinn er ekki síður góður á Kántrýdögum. Sem fyrr er galleríið með fallega nafninu Djásn og dúllerí opið og listsýning er í Nes listamiðstöðinni. Að venju verður gospelmessa í hátíðartjaldinu og þar mun kirkjukór Hólaneskirkju syngja undir stjórn Óskars Einarssonar.

Loks má nefna að kaffihlaðborð í Bjarmanesi þar sem Húnabandið og Rúna munu leika og syngja gestum til ánægju.