Kántrýbær er bestur





Kántrýbær á Skagaströnd
Hólanesvegur 11 - Sími 452 2829
Tölvupóstur

Sumardagskrá 2009

Skoðið Kántrýbæ að innan

Er eini kántrý vestern veitingastaðurinn á Íslandi. Kántrýbær er á Skagaströnd sem er þéttbýliskjarni við austanverðan Húnaflóa rétt um 20 km frá þjóðvegi númer eitt.

Kántrýbær er ekki aðeins veitingarstaður heldur einnig sögusafn og útvarpsstöð þar sem spiluð er kántrýtónlist og þá helst frá mið- og suðurríkjum Bandarríkjanna.


Á veitingastaðum í Kántrýbæ er í boði fjölbreyttur matseðill þar sem allir geta fundið eithvað við sitt hæfi. Auk þessa býður Kántrýbær upp á hvers kyns mat og þjónustu fyrir jafnt litla sem stóra hópa fólks, allt að 100 manns.

Kántrýbær hefur náð að skapa sér mjög sérstakan sess í íslenskri menningu og er löngu orðið landsfrægt og hefur hróður þess borist um víða veröld. Á hverju ári koma milli 15.000 og 20.000 gestir í kántrýbæ.

Kántrýbær er bestur
 

Þjónustan á Skagaströnd

Kántrýbær er skemmtilegur veitingastaður
Forsetinn og Kóngurinn

Matseðillinn

Drykkir og meðlæti

Kántrýbær býður upp á alla almenna rétti eins og steikur og fiskrétti,ýmsa smárétti,hamborgara og einnig Kántrýpizzur sem slegið hafa í gegn en þær eru með mexíkósku ívafi.

Í Kántrýbæ er hægt að taka á móti allt að 150 manns í mat og er tekið á móti einstaklingum og hópum til að borða,dansa línudans,syngja og spila kántrýtónlist og alla aðra tónlist.

Hljómsveitin Janus frá Skagaströnd hefur spilað oft í Kántrýbæ - Skoðið myndbandið og sjáið stemninguna - Smella hér

Kántrýbær er bestur
"Matur er mannsins megin"

Desemberpistill Kúrekans 2012

Desemberpistill Kúrekans 2012. Komið þið blessuð og sæl,eftir langa bið . Ég hef verið lítið til umræðu eða til viðtals síðan konan mín dó ,síðastliðin mars. Ég hef ekki verið algjörlega í lagi hvað ýmislegt varðar síðan,að missa svona snökt lífsförunaut sinn er eitthvað sem maður getur ekki bikernt .Ég er að ná mér svona hægt aftur en ég verð aldrei það sem ég var,því öll lífslöngun mín er horfin,og kemur ekki aftur. Það hefur svo sem ekkert ske..
Meira
English version
Opnunartíminn

Grillið í Kántrýbæ er opið í sumar frá kl. 11.30 til 22.00. alla daga og barinn er opinn um helgar.


Það er hægt að sigla um Húnaflóa og njóta fegurðarinnar.
Á Skagaströnd er glæsilegt með tjaldstæði fullkomnu þjónustuhúsi fyrir gesti.

 
• Kántrýbær Hólanesvegur 11 • IS - 545 Skagaströnd Iceland • Tel. + 354 452 2829 • Tölvupóstur