| Kúreki Norðursins | |
Þið
þekkið hann Hallbjörn,þennan eldhuga sem gengur fram
í því að gera drauma sína að veruleika. Þið vitið að hann er sérstakur og fer ekki troðnar slóðir. |
![]() |
Hallbjörn fæddist 5.Júní 1935 og hefur ávallt
búið á Skagaströnd. Snemma komu tónlistarhæfileikar
hans í ljós og þó reynt væri að aga
þá og beina þeim inn á svið fræðilegrar
kunnáttu,varð ekki ráðið við óbeislaða
sköpunargáfu hans og frjálsa túlkun. Hallbjörn
kaus ekki að binda sig fastan við afmarkaðan lærdómsreit
í völundarhúsi tónlistarinnar,heldur skeiðaði
hann þar vítt og breitt á fáki og lét
gagnrýni sem vind um eyru þjóta. |
|
|
Í
musteri söngs og tóna fann hann sín hjartans heimkynni
og naut þess að sækja þangað gleði og yndi
þess manns sem er náttúrubarn að öllu eðlisfari.
Lengi vel safnaði Hallbjörn hugmyndum og spann síðan
við þær persónuleg einkenni sín á
frumlegan hátt. Lög Hallbjörns eru mörg hver orðin sígild og senda tæra tóna beint inn í kjarna hinnar íslensku,þjóðarsálar. Persónuleiki þessa frumherja kántrýtónlistar við ysta haf er vissulega margslunginn,en þó vakir yfir öllu eðli hans yljandi einlægni sem er honum meðfædd. List hans er ekki hvað síst fólgin í því að hann nær beint til hjarta fólks og það finnur að honum er ekkert mannlegt óviðkomandi. Það er ósvikin tilfinning í lögum hans og hann syngur þessa tilfinningu fram með allri þeirri hjartahlýju sem honum er svo eiginleg. Hallbjörn er sannarlega Kúreki Norðursins og meðan hann stendur á sviði lífsins,önnum kafinn við að gera frumlega drauma sína að veruleika,verður íslenskt þjóðlíf litríkara en ella. Það eru einmitt menn eins og hann sem örva það skemmtilega við mannlífið,menn sem þora að vera þeir sjálfir og koma til dyranna eins og þeir eru klæddir. Hallbjörn er sannur persónugervingur þess ævintýris sem hann hefur sett á svið. Með því framtaki hefur hann sýnt og sannað, að flest er þeim fært sem sækir fram ótrauður með stefnumál sín og er brennandi af áhuga fyrir framgangi þeirra. Enn hefur Hallbjörn margt á prjónunum og víst er að aldrei verður logn í kringum þennan hugmyndaríka mann sem lifir og hrærist í lífsdraumi sínum við ysta haf,og tekur þar á móti gestum sínum í hinum landskunna Kántrýbæ.
Að honum
megi vel farnast er vissulega ósk allra þeirra sem ala drauma
í brjósti og eru hrifnæmir í eðli sínu,allra
þeirra sem hafa auga fyrir því sem er sérstætt
og skemmtilegt í lífsflórunni hér á
landinu okkar bláa. Kántríkóngurinn Hallbjörn Hjartarson er þessa dagana að leggja lokahönd á plötu sem væntanleg er í verslanir í mánuðinum. Hallbjörn sendi síðast frá sér hljóðversplötu 1997, en það var gospelplatan Kántrý 8. Nýjasta platan er nefnd eftir kettinum Búlla: "Titillagið er um kött sem ég átti og hét Búlli. Í laginu segi ég sögu hans og þótti rétt að láta plötuna heita eftir þessu lagi. Á einni plötunni sem ég lét frá mér söng ég um hundinn Húgó og það lag hefur verið mjög vinsælt, sérstaklega hjá börnum og unglingum. Þess vegna datt mér í hug að búa til lag og segja frá Búlla sem var mjög skemmtilegur og yndislegur köttur," sagði Hallbjörn og bætti við að vitaskuld fengi síðan mynd af Búlla ketti að prýða plötuhulstrið. Lagið um Búlla og annað lag á diskinum, "Hann afi er ekki afi minn", samdi Hallbjörn sérstaklega með yngstu hlustendurna í huga, en annars er platan fyrir alla gerð. "Það eru 10 spánný lög á henni sem aldrei hafa heyrst áður," sagði Hallbjörn. Með þessari plötu segist Hallbjörn vera búinn að gefa út 113 lög. Fyrsta alvöruplata Hallbjörns kom út 1981 og því er um dágóð afköst að ræða. "Þetta er eitthvað sem ég ræð ekki við," segir Hallbjörn. "Þegar ég er búinn að gera textann er ég neyddur til að búa til lag. Og þegar ég er búinn að safna í sarpinn lögum og textum hef ég ekki frið í mínum beinum fyrr en ég kem þeim frá mér. Það má segja að þegar ég er búinn að eignast börnin þá verði ég að ferma þau!" bætir hann við hlæjandi. Tónlistin var stór þáttur í uppeldi Hallbjörns og faðir hans var harmónikkuleikari sem spilaði á böllum fram á morgna. Barnungur hóf Hallbjörn að spila á böllum með bræðrum sínum. "Ég horfði á bróður minn spila á gítarinn sinn, hvernig hann tók gripin og slíkt. Svo, þegar hann fór í vinnuna á daginn, stalst ég í gítarinn hans og rifjaði upp það sem ég sá hann spila - og þannig lærði ég smám saman á gítar." Á heimilinu voru spilaðar plötur með Johnny Cash og seinna meir fór Hallbjörn að vinna á Keflavíkurflugvelli þar sem kántrítónlistin glumdi í útvarpinu allan daginn. Enda fór svo að Hallbjörn tók ástfóstri við kántríið og hefur síðastliðin tíu ár helgað sig kántríútvarpi sínu og býli sínu, Kántríbæ á Skagaströnd, sem fyrir löngu er orðinn landsþekktur og laðar að sér fjölda gesta ár hvert. Þess má geta að söfnunarreikningur hefur verið opnaður til þess að útvarpsstöð Hallbjörns geti sent út á höfuðborgarsvæðinu. |
|