
Október pistill Kérekans 2O1O,
Komið þið blessuð og sæl,það er langt síðan ég hef sett eitthvað inn á síðuna mína,eða frá því í júlí sl.
Eftir fjöruferðina mína 23 júní síðastliðnum hef ég vægt til orða tekið ekki verið uppá marga fiska kominn á þessu tímabili.
Ég hef verið frekar lélegur,þar sem ég er enn þá að drepast í öxlinni og meir en það,því öll hægrihliðin er meira og minna eitthvað sködduð eða eitthvað að, því mig skortir jafnvægi ,er alltaf á haustum ef ég er ekki með hugann stanslaust við hvert spor sem ég tek.
Ég á nú loksins að fara til Akureyrar í allsherjar rannsókn þann 18, þessa mánaðar þar sem ég á að mæta í þrjár rannsóknir, svo maður verður að bíða og sjá hvað kemur út úr því.
Ég veit ekki hvort ég kem aftur á öldur ljósvakans meira á þessu ári,það verður bara tíminn einn að segja um.Ég er að vísu búinn að sakna þess að hafa ekki verið með ykkur þennan tíma en við því er ekkert að gera,maður verður bara að taka því eins og hverju öðru hundsbiti . Frá Kántrýbæ er allt gott að frétta,hann er nú opinn frá og með mánudegi til og með föstudags í hádeginu og geta allir komið á þessum tíma og fengið sér ódýran mat ,og verið þið öll velkominn eins og ávallt.
Munið að Kántrýbær er bærinn ykkar.
Ég læt þetta duga að sinni,munið að ganga ávallt á Guðsvegum því þá mun ykkur velfarnast í lífinu.Ykkar vinur Kúrekinn.