
Nóvember pistill Kúrekans 12.11.2010.
Komið þið öll blessuð og sæl, þá er kominn tími til þess að ég reyni nú
að senda ykkur nokkrar línur í þessum pistli mínum betra seint en aldrey.
Eins og þið hafið eflaust flest lesið um og frétt,að þá lenti ég í
Slæmu slysi 23 júní sl.
Nú eru liðnir um 5 mánuðir þann 23 þ,m,síðan þetta gerðist og lítið sem ekkert gerst síðan Þeir læknar hér á Blönduósi sem með mig hafa verið
hafa haft svo mikið að gera fyrir sjálfan sig eða svo hlýtur að vera ,eða réttara sagt alltaf í fríum og lítið sinnt mér . Öxlin er meira og minna öll vitlaut grófin,og sennilega ónýt,og þarf sennilega að brjóta hana upp og setja
gervilið í hana. Ég er hvað eftir annað búinn að tala við læknana á
Blönduósi,en ekkert gerist eins verið í sambandi við þá á Akureyri.
Í águst sendu þeir mig í allsherjar rannsókn til Akureyrar og út úr því kom að þetta greri semsagt alt vitlaust , en samt er ekkert gert
ekkert hefur verið gert þrátt fyrir stöðugar beiðni að svo sé gert.
Ég fór svo aftur til læknis hér á Skagaströnd í síðustu viku til læknis,
sem ég hef ekki áður farið til,og tjáði honum að ég væri orðin
hundleiður á fara til þessara lækna á Blönduósi og Akureyri og
eilíft vera að kvarta við þá. en ekkert væri gert,nú væri ég búinn
dröslast svona vankaður í tæpar 5 mánuði og ekkert væri gert.
Ég gæti tæpast gengið vegna jafnvægis leysis, það mætti segja að ég get gengið reikull beint strik en ef ég breyti þeirri áætlun þá er ég kominn á hausinn .eg er með stöðuga verki í hnakka og handlegg og víðar.
Nú heimtaði ég að eitthvað yrði gert enn hlutirnir ekki bara látnir drapst svona áfram. Þessi læknir tók strax málið og lofaði að ganga í það,enn ekkert gerist.
Enn síðastliðin mánudag hringdi til mín læknir frá þeim fyrir norðan,
og sagðist hanna leggja beiðni um innlagningu, en í dag hef ég ekkert heyrt
frá þeim, enn í dag er 18 nóvember.
Ég skil þetta bara ekki,þetta kæruleysi,enda sagði þjálfarinn minn að þetta gerðist bara á Íslandi,hvergi annarstaðar og er ég henni bara sannála,eða hvað? Verkin sýna merkin ,eins og máltækið segir.
Kæru vinir,ég hef þetta ekki lengra,en bið ykkur vel að lifa og muna að ganga ávalt á Guðs vegum .Ykkar vinur Kúrekinn.