Saga Kántrýhátíðarinnar á Skagaströnd.

Saga Kántrýhátíðarinnar á Skagaströnd.
Á Skagaströnd starfar kántrýdanshópur. Stækka mynd

Danshópurinn hefur starfað frá árinu 1995 og æfir hann í hverri viku allt árið.
Hópurinn hefur sýnt og keppt í kántrýdönsum víða um land með frábærum árangri og sló til dæmis í gegn í Laugardalshöllinni í Íslandsmeistarakeppni í kántrýdönsum og vann þá keppni með glæsibrag.

Hópurinn býður upp á sýningar í Kántrýbæ og hægt er að panta dansatriði fyrir ferðahópa.
Á Kántrýhátíð fer fram kántrýdanskeppni en þar keppa danshópar sem koma víða að.
Þessi keppni er sú stærsta sem fram fer á Íslandi ár hvert en hana sóttu um 800 manns á síðasta ári.

.

Hallbjörn og Kántrýmenningin.
Enn á ný er hugsun manna bundin við Skagaströnd með tilhlökkun í taugum. Fyrir sjónum þeirra sindra sólskinsmyndir frá fyrri hátíðarstundum í bæ kúrekans. Það finna allir sem ævintýri elska að gaman er að taka þátt í draumi sem varð að veruleika. Kántrý -ævintýrið er veruleiki í tilfinningum allra þeirra sem geta skellt kúrekahatti á kollinn og verið með í að láta fjörið fjörið flæða á frábærri hátíð með heilbrigðum og lifandi hætti.

Fyrir tilverknað trygglyndra kántrývina um land allt er Kántrýhátíðin orðin það sem hún er-ein rismesta og fjölskylduhollasta hátíð sumarsins.
Margir spyrja eflaust,hvað er helst á dagskrá hjá Hallbirni núna? Jú,það er fleira en fátt,meira en margt. Hann er að þróa þá hugmynd sína að koma upp safni sem kynnir feril kúrekans í smáu og stóru. Á efri hæð hins nýja Kántrýbæjar munu menn í náinni framtíð fá að sjá spor kántrýkóngsins í stílhreinum stjörnusandi áranna. Það vita nefnilega allir sem vit hafa að:

Hallbörn kemur víða við,
að vinsældunum ríkur..
Alltaf fljótur upp á við,
engum manni líkur.

Og hvað segir kántrýkóngurinn við gestinn sem heimsækir hann í finnska furulundinn,sem er bjálkum búin umgerð sérstæðasta ævintýris norðurhjarans? Jú,hann segir ekki með nefmæltum Nasville hljómi,heldur með séríslenskri klingjandi kántrý-raddsveiflu:

Er kemur þú í Kántrýbæ
með kunningjum og vinum
þá sérðu að þú ert sí og æ
í sama fagnaðinum!

Þar ríkir þessi rétti tónn
sem ræktar hugsun fróma
að hver og einn sé þarfur þjónn
og þjóð sinni til sóma!


Gospeltónlistin.
Gospelsöngur er í dag fastur liður í helgihaldi í Hólaneskirkju og er orðinn sjálfsagður hluti af almennum söng í kirkjunni. Sóknarprestur í Hólaneskirkju er Sr.Magnús Magnússon.
Kórstjóri og organisti er Michael Jón Clark. Tónlistarmaðurinn Óskar Einarsson hefur komið að þjálfun kirkjukórsins í gospelsöng en hann er tónlistarstjóri í Fíladelfíu.


"Af fjöðrum má fugl þekkja."