Hérna er nánari útskýring á WILD WESTERN GARDEN IN ICELAND.

 

WILD WESTERN GARDEN IN ICELAND.

Kántrýgarðurinn Skagaströnd.

Eins og nafnið bendir til er hér átt við skemmtigarð sem verði allur hannaður í Kántrýstíl, með alls konar leiktækjum og öðru til afþreyingar,bæði fyrir fullorðna og börn. Byrja má í smáum stíl, en auka síðan við eftir aðstæðum. Róm var ekki byggð á einum degi,svo að í þetta má ætla 3-4 ár,eða skemmri tíma ef allar aðstæður leyfa.

•  Garðurinn skal hannaður í blöndu af íslenskum aðstæðum á fyrri tímum og amerískum tíma,en samt skal hann látinn bera íslenskt yfirbragð að mestu leyti. Varast skal að stæla algjörlega erlenda garða í svipuðum stíl, því hér þarf að vera eitthvað sem ferðamaðurinn sér ekki annarstaðar og slík blanda sem þetta er ótvírætt það sem koma skal. Hinsvegar alls ekki það sem menn sjá í flestum slíkum görðum víða um heim,aðeins leiktæki skulu vera þau sömu,því ekki er unnt að fá annað,en samt mætti hanna eitthvað séríslenskt.

•  Í garðinum skal vera lítil rafmagns járnbrautarlest sem dregur nokkra vagna á eftir sér um garðinn, þar sem börn geta setið í , henni skal gerð braut í miðju garðsins.

•  Innan smá girðingar skal koma upp litlu Western-þorpi með smærri járnbrautarlest sem dregur litla vagna hlaðna trjábolum-kolum og öðru sem þessar lestar drógu á eftir sér í Villta Vestrinu í þá tíð. Þetta skal vera lítil lest og vagnar hennar skulu vera sirka 60-70 cm að lengd, þetta er aðeins sýningaratriði ætlað til að horfa á.

•  Þarna skal einnig vera líking af á, sem rennur í gegnum þorpið og brú yfir ána þar sem lestin getur ekið yfir,þetta má hanna á þann veg að hafa dælu sem dælir alltaf sama vatninu upp aftur til rennslis á ný, ána sjálfa má hanna úr trefjaplasti og steinum og öðru skal komið fyrir í mótinu við hönnun hennar. Þarna skal vera stoppistöð og umferðaljós, með fram brautarteinunum skal koma upp litlum eftirlíkingum af búgörðum í smáum stíl stærð sirka 70-80 cm á lengd og hæð samsvarandi eftir því. Þetta skal minna á búgarða bænda á fyrri tímum . Þessi hús skulu vera úr torfi með framburst úr timbri, eins með hlöðnum veggjum og torfþaki allt í gömlum stíl, þessar eftirlíkingar má einnig mála á masonít plötur sem notaðar yrðu til að byggja þessar eftirlíkingar úr, síðan mætti festa torfi og öðru á þessar eftirlíkingar sem mynda hleðslur og annað í sama anda. Eins skulu vera á bæjarhlaðinu litlar dráttarvélar og annað sem minnir á helstu tæki sem bændur notuðu á fyrri tímum hér á landi. Einnig má koma fyrir lítilli vindmyllu, því þær voru til hér á stöku stöðum áður fyrr. Þetta yrði afgirt svæði eins og fyrr segir og aðeins ætlað til að skoða og horfa á og þetta yrði haft í gangi alltaf þegar garðurinn væri opinn.

•  Í garðinum skulu vera 20-25 sumarhús í byrjun sem hægt verður að leigja út á sumrum sem vetrum. Bjóða mætti fólki einnig fría lóð eða frían lóðarleigusamning til 10 ára eða svo, gegn því að það byggði sína sumarbústaði á svæðinu. Þetta myndi auka öll umsvif og stækka garðinn. Þarna gætu fjölskyldur dvalið um lengri eða skemmri tíma að vild,stefnt skal að því að starfssemi geti verið í garðinum helst allt árið að einhverju leyti. Alt þetta myndi samtímis auka tekjur hreppsins og skila sér margfalt til baka á ýmsan hátt. Með því að hafa húsin þetta mörg skapar það möguleika á að geta tekið á móti stórum hópum ferðafólks.eða allt að 100-130 manns, þetta myndi gjörbreyta allri framtíð Skagastrandar og ekki veitir af.

•  Við höfum hér upp á ýmislegt að bjóða, eins og t. d. sundlaug, golfvöll og íþróttahús. Hér er stutt í veiðivötn, og þar má nefna Skagavötnin,og svo það fagra útsýni sem er að finna fyrir þá sem fara vilja fyrir Skagann, Ketubjörgin og fleira. Svo er það Kálfshamarsvík hinn forni verslunarstaður, eins þegar Þverár-fjallsvegurinn verður kominn, er stutt á Sauðárkrók. Eins getum við boðið upp á útsýnissiglingar yfir á Strandir og út með Skaga, svo eitthvað sé nefnt. Eins gönguleið út í Harastaðahelli, en þar má finna gullæðar víða í berginu. Héðan er stutt á Kjöl og á Hveravelli og margt fleira sem má til finna þar sem við erum í hringiðu umferðarinnar að mér finnst. Þótt það taki 3 tíma að aka hingað úr Reykjavík er það stutt í dag, og þótt það taki 15-20 mínútur að aka þennan spotta hingað frá þjóðveginum, lætur fólk það ekki aftra sér frá því að koma hingað. Síst ef við getum boðið því upp á eitthvað sem það sér ekki annarstaðar, við erum því vel staðsett til að koma slíkum stað upp hér sem Kántrýgarðinum. Þetta er spennandi og ákjósanlegt verkefni í sérflokki til að glíma við, og á sér enga hliðstæðu hér á landi, og tilvalið að efla ferðamennskuna í Húnaþingi á þennan hátt. Við eigum að hafa alla möguleika til að geta þetta ,og öll sú kynning sem hefur áunnist í gegnum Kántrýbæ, bæði erlendis sem innanlands, gefur okkur tvímælalaust rétt til að hagnýta okkur allan þann ávinning sem af því hefur hlotist,bæði okkur til handa sem landsmönnum öllum. Það ætti að vera hverjum manni ljóst sem vill Húnaþingi vel og einnig landsmönnum öllum, menningu okkar og einnig menningu landsins alls til framtíðar, því þetta þætti sérkennilegt að sjá hér uppi á Íslandi fyrir erlenda ferðamenn.

•  Í garðinum skulu reistar framhliðar af ýmsu því sem mest var í sviðsljósi kúrekans í hinu villta vestri forðum daga, eins og t.d. lögreglustöð, pósthús, fangelsi, spilavíti, bari og annað úr tíma þessara fornu garpa. Þarna skulu gestir garðsins geta fengið keypt ýmsa hluti merkta villta vestrinu á Skagaströnd. Þeir skulu jafnframt geta póstlagt bréf sín og kort í Garðinum ,og fengið á það stimpil villta vestursins ásamt dagsetningu, og síðan mun Garðurinn sjá um að koma því í Pósthús staðarins daginn eftir, ef þess er óskað.

•  Þarna skal einnig vera ein lítil verslun að byrja með í gömlum stíl, þar sem afgreitt er yfir borðið, síðan geta komið fleiri þegar henta þykir og óskir kæmu um það. Þarna skulu gestir Garðsins geta fengið keypt það helsta sem þarf til viðurværis í stuttan tíma, eins og td, kaffi, te, kex, álegg, osta, niðursoðna ávexti sem ferska, gos djús, sælgæti, harðfisk og mjólk og jafnvel hákarl og annað sem tilheyrir þjónustu í þessum geira. En að sjálfsögðu yrði að koma í ljós hvort þessi þjónusta geti gengið allt árið eða bara yfir sumartímann, en það yrði að skoða eftir þróun staðarins.

•  Í Garðinum skal vera veiðitjörn þar sem gestir Garðsins geta fengið keypt veiðileyfi gegn því að sleppa veiðinni aftur út í tjörnina, þetta væri sport þjónusta, í þessa tjörn skal sleppt eldisfiski.

•  Þarna skal einnig vera fuglatjörn með hólma þar sem komið yrði fyrir íslenskum villijurtum, eins og t.d. hvönn, njóla og burnirót og fleiri jurtum sem ekki þykja fýsilegar í görðum almennings, og umhverfis væri svo grjót af ýmsum gerðum ásamt gróðri .

•  Trjágróðri skal þannig fyrir komið að hann myndi sem mest skjól í Garðinum þegar hann vex. Æskilegt væri í þetta ösp þar sem hún verður hávaxin og er fremur fljótvaxin. Henni skal komið fyrir í útjaðri garðsins, eins lágvöxtum runnum víða um garðinn sem einnig gæfu skjól, en einmitt það skal haft í fyrirrúmi, að skjól verði sem mest í honum

•  Þetta eru aðeins hugmyndir sem eru ótæmandi fyrir hugvitið og sköpunargáfuna. Þarna skal Kántrýtónlistin hafa öll völd og hljóma um garðinn úr hátölurum,skal það gert til að varðveita það sér einkenni sem þarna á að ríkja, því Kántrýandinn og Kántrýstemmningin á hvergi að vera í fyrirrúmi nema hér á Skagaströnd, því hér á hún sitt lögheimili. Æskilegt væri að Kántrýbær gæti skipað í framtíðinni sama sess og Grand Ole Opry í Nashville í Bandaríkjunum.Að endingu vil ég taka það fram að þessi Garður á að rísa á hinu svonefnda Víkurtúni og upp af því, enda er þar nægt landrými, þar er líka æskuheimili mitt sem ég vil láta taka í gegn og koma í upprunalegtástand að mestu leyti og koma þar upp safni kúrekans í myndum og munum. Allt eru þetta atriði sem eiga fyrir sér að þróast og vaxa áfram inn í veruleikann.

Athugasemd.

Það er alveg ljóst að ef Skagaströnd ætlar að viðhalda þeirri eftirtekt sem hún hefur áunnið sem ferðamannastaður, og eiga einhverja framtíð fyrir sér á því sviði, þá verður að gera eitthvað stórt til að viðhalda þeirri eftirtekt sem Kántrýbær og Kántrýið allt í heild hefur vakið meðal landsmanna fyrst og fremst auk erlendra ferðamanna. Við megum ekki bíða eftir því að einhverjir aðrir sjái sér ávinning í að taka upp þráðinn, og gera hann sterkari og af meiri myndugleika, því þá þýðir lítið að naga sig í handarbökin og ætla að byrgja brunninn eftir að barnið er dottið ofan í hann.

Það er eindregin ósk undirritaðs að framkvæmd við þennan garð geti hafist vorið 2003,og að það taki ekki lengri tíma en þrjú ár að koma honum í fullt gagn.

Það er jafnframt ósk undirritaðs að það geti tekist samvinna í þessu máli meðal Höfðahrepps og ríkisstjórnarinnar í tengslum við byggðaáætlun hennar þar sem lagt er til, að fjármagn verði lagt í garð sem þennan eins og fyrr segir. Ef slíkur garður á að rísa hér á landi, höfum við frumburðarréttinn til fara fram á að hann rísi hér á Skagaströnd og hvergi annarstaðar. Þar sem Skagaströnd hefur auk þess verið sett til hliðar í öllum áætlunum um uppbyggingu á landsbyggðinni á undanförnum árum, eins og að við séum eitthvert auka atriði, eigum við hiklaust rétt á aðstoð ríkisvaldsins til eflingar lífvænlegri stöðu almennings hér sem yrði byggðalaginu öllu til heilla.

Það má vera að einhverjum þyki ég taka of mikið upp í mig með þessum orðum, en svona er ég , ég segi mína meiningu hvort sem mönnum líkar það betur eður ei.

Heilindi og hreinskilni hljóta að vera meginkostir í fari hvers manns.

Hallbjörn J. Hjartarson Kántrý



Eldri pistlar

Mars
Febrúar
Janúar